For at give dig den bedst mulige oplevelse bruger dette websted cookies. Gennemgå vores Fortrolighedspolitik og Servicevilkår for at lære mere.
Forstået!
Indhold leveret af Hafliði Breiðfjörð. Alt podcastindhold inklusive episoder, grafik og podcastbeskrivelser uploades og leveres direkte af Hafliði Breiðfjörð eller deres podcastplatformspartner. Hvis du mener, at nogen bruger dit ophavsretligt beskyttede værk uden din tilladelse, kan du følge processen beskrevet her https://da.player.fm/legal.
Player FM - Podcast-app Gå offline med appen Player FM !
Indhold leveret af Hafliði Breiðfjörð. Alt podcastindhold inklusive episoder, grafik og podcastbeskrivelser uploades og leveres direkte af Hafliði Breiðfjörð eller deres podcastplatformspartner. Hvis du mener, at nogen bruger dit ophavsretligt beskyttede værk uden din tilladelse, kan du følge processen beskrevet her https://da.player.fm/legal.
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Indhold leveret af Hafliði Breiðfjörð. Alt podcastindhold inklusive episoder, grafik og podcastbeskrivelser uploades og leveres direkte af Hafliði Breiðfjörð eller deres podcastplatformspartner. Hvis du mener, at nogen bruger dit ophavsretligt beskyttede værk uden din tilladelse, kan du følge processen beskrevet her https://da.player.fm/legal.
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Innkastið eftir 23. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Óskar Smári. Góð umferð fyrir Víking, dómararnir eru í sviðsljósinu og KR-ingar komnir í fallsæti. Lengjudeildarhorn og ýmislegt fleira!
Mjög svo áhugaverð umferð að baki í ensku úrvalsdeildinni en Liverpool er strax að stinga af. Arsenal og Manchester City gerðu dramatísk jafntefli þar sem Pep Guardiola var ólíkur sjálfum sér og Manchester United vann sigur á Chelsea þar sem Enzo Maresca tók ótrúlegar ákvarðanir. Aston Villa eru mestu vonbrigðin hingað til og nýliðarnir eru mjög flottir. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Kári Snorrason fara yfir allt það helsta í enska boltanum í Pepsi Max Stúdíóinu.…
Liverpool eru með 5 stiga forskot í deildinni eftir 2-1 sigur í Bítlaborgarslagnum gegn Everton. Arsenal og Man City gerðu 1-1 jafntefli á Emirates. Man Utd unnu mikilvægan sigur á Chelsea 2-1 á Old Trafford. Allir nýliðarnir náðu í stig um helgina. Brighton og Tottenham gerðu 2-2 jafntefli á Amex og Bournemouth og Newcastle skildu markalaus 0-0 á suðurströndinni.…
Baddi Borgars hinn eini sanni Lengjusérfræðingur mætti í settið! - Afhverju hætti hann með FC Árbæ? - Fórum yfir hvert lið fyrir sig! - Baddi tilkynnti lið ársins að hans mati - Hvernig fer 50milljón króna leikurinn og hver sigrar .net bikarinn?
Elvar Geir, Benedikt Bóas og Baldvin Borgars fara yfir íslenska boltann í útvarpsþætti vikunnar. Byrja á Bestu deildinni og vinna sig svo niður stigann. Fyrsta umferðin eftir tvískiptingu er framundan og verulega áhugaverðir leikir á dagskrá. Víða er dramatík í gangi, þar á meðal í Kópavoginum. Það er þrumustuð í umspili Lengjudeildarinnar og Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, er á línunni. Þór vann deildina og verður í Bestu á næsta ári. Rætt er um lið ársins í 2. deild, undanúrslit Fótbolt.net bikarsins og aðeins kíkt á enska boltann.…
Fyrri leikirnir í undanúrslitum umspilsins eru loknir og HK og Njarðvík eru bæði með eins marks forskot fyrir seinni leikinn. Stefán Marteinn, Sverrir Örn og Haraldur Örn mættu að vana til að fara yfir leikina og sérstakur gestur var Kári Snorrason.
Man City sigraði Man Utd í slagnum um Manchester borg. Tottenham og Arsenal sigruðu bæði sína andstæðinga með sömu markatölunni. Bournemouth skelltu Brighton á Suðurströndinni. Nokkrir 0-0 leikir og Brentford og Chelsea gerðu 2-2 jafntefli á G-Tech vellinum í London.
Innkastið eftir 22. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Almarr Ormarsson. Ljóst er hvernig deildin skiptist upp. Víkingar eru á toppnum eftir 7-0 sigur gegn KR og í fallbaráttunni er ÍA skyndilega með lífsmarki! Stjarnan hefur unnið fimm í röð en spilamennska Blika er áhyggjuefni í Kópavogi. Lengjudeildarhornið á sínum stað.…
Manchester United átti ekki mikinn möguleika í nágrannaslagnum gegn Manchester City í dag. Rúben Amorim er með að meðaltali eitt stig í leik sem stjóri United og spurning hvort hann fari að leita til vinnumálastofnunnar fljótlega. Það var dramatík á Turf Moor þar sem Liverpool skoraði í blálokin og það var líka drama hjá Brentford og Chelsea. Tottenham svaraði slæmu tapi vel og Arsenal var sannfærandi gegn lærisveinum Ange Postecoglou í Tottenham. Þetta og meira í þessum þætti en Magnús Haukur Harðarson og Vignir Már Eiðsson voru ásamt Guðmundu Aðalsteini í þættinum.…
Þórsarar unnu úrslitaleikinn gegn Þrótturum og vinna því Lengjudeildina. Keflavík vann Selfoss og felldi þá niður í 2. deildina og um leið fóru bakdyraleiðina upp í umspilið. ÍR missti af umspilinu í loka leik þar sem þeir töpuðu fyrir Fylki.Stefán Marteinn Ólafsson mætti aftur að stýra þættinum og með honum voru Sverrir Örn og Haraldur Örn.…
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net. Tómas Þór, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke fara yfir allt það helsta í boltanum. Meðal annars er hitað upp fyrir lokaumferðina í Bestu fyrir tvískiptinguna.
Loka umferð Lengjudeildarinnar fer fram á Laugardaginn klukkan 14:00 þar sem þrjú lið geta unnið deildina. Þrjú lið eru í hættu á að missa af umspili, og fjögur lið geta endað í fallsæti. Haraldur Örn og Sverrir Örn fóru yfir þetta ásamt Þróttaranum Jóni Ólafssyni sem var sérstakur gestur í þættinum. Einnig var hringt í Sæbjörn Steinke og Stefán Martein.…
Villi Neto kíkti til okkar í Hugarburðarbolta Extra og við fórum yfir það helsta. Völdum topp 5 bestu fantasy pikkin það sem af er tímabili. Kaup og sölur liðanna voru rædd og við rýndum í framhaldið eftir þetta landsleikjahlé. Fórum yfir liðin okkar og hverjar fyrirætlanir okkar eru í næstu umferðum.…
Hér er sérstakur aukaþáttur af Innkastinu, þar sem Lengjudeildin er í aðalhlutverki. Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars fara yfir málin. Taugarnar voru þandar í 21. umferðinni og í lokaumferðinni verður hreinn úrslitaleikur þegar Þróttur mætir Þór og bæði lið þurfa að sækja til sigurs því Njarðvíkingar eru tilbúnir að stela toppsætinu. Fjölnismenn eru fallnir en lífsbaráttulaugardagur framundan í fallbaráttunni.…
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. september. Í upphafi þáttar heyrir Elvar Geir í Frey Alexanderssyni, þjálfara Brann í Noregi en liðið er á leiðinni í Evrópudeildina. Svo fær landsliðið sviðið eftir flottan 5-0 sigur gegn Aserbaídsjan. Ungir leikmenn létu til sín taka en hversu lélegir eru Aserar? Elvar, Tómas Þór og Valur Gunnars gera upp leikinn. Vont tap U21 landsliðsins og komandi leikir í Lengjudeildinni fá einnig pláss.…
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Haraldur Örn Haraldsson.
Draumamark Dominiks Szobozlai skildi lið Liverpool og Arsenal að um helgina. Man Utd kreisti fram sigur á elleftu stundu. Brighton skellti Man City. West Ham létti pressunni af stjóra sínum með 0-3 sigri í Notthingham. Chelsea sigraði Fulham 2-0 í Lundúna slag á Brúnni og Tottenham lá á heimavelli 0-1 gegn spræku liði Bournemouth.…
Mjög svo áhugaverð umferð í ensku úrvalsdeildinni að baki. Ungverjarnir hjá Liverpool voru öflugir á móti Arsenal með Ungverja í stúkunni, Manchester United náði í kærkominn sigur með taugahrúguna Rúben Amorim á hliðarlínunni og Tottenham gerði eins og Tottenham gerir vanalega. Þá er gluggadagur í dag en þetta væri einhver áhugaverðasti gluggadagur seinni tíma. Guðmundur Aðalsteinn ræddi við Baldvin Már Borgarsson og Magnús Hauk Harðarson um það helsta í þessu.…
Innkast vikunnar og Valur Gunnarsson stýrir þættinum í fjarveru Elvars Geir. Haraldur Örn og sérstakur gestur Gunnlaugur Jónsson fóru yfir umferðina.Víkingur og Breiðablik gerðu jafntefli í frábærum leik, Stjarnan kom til baka gegn KA, ÍA féll á sínum síðasta séns, Afturelding líklegastir að falla með þeim, Valsmenn rændir og KR vinna enn ekki.…
Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum á þessu sólríka sunnudagskvöldi. Úrslitaleikur Mjólkurbikars kvenna var hin mesta skemmtun og þá voru Breiðablik og Valur að spila í Evrópu. Svo eru bara þrjár umferðir eftir fram að skiptingu í Bestu deild kvenna. Næstkomandi fimmtudagur verður svakalegur en nánar var rætt um það í þættinum. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fara yfir allt það helsta í kvennaboltanum.…
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir sviðið. Ljóst er hverjir andstæðingar Breiðabliks verða í Sambandsdeildinni, æsispennandi umferð í Bestu deildinni á sunnudag, Arnar valdi landsliðshóp, enski boltinn og fleira til umræðu.…
Sumarið 1992 skrifuðu Danir sig í sögubækurnar. Þeir mættu til Evrópumótsins í Svíþjóð án þess að hafa unnið sér rétt til þess að spila í mótinu og enduðu sem Evrópumeistarar. Sigurinn var einstakur og eftir mótið var reglum fótboltans breytt. En þessi ótrúlegi árangur kom ekki úr lausu lofti. Hann átti sér langan og áhugaverðan aðdraganda sem við rákum í þessum þætti þar sem við rýnum í söguna um okkar ástsælu frændur og ferðalag þeirra að óvæntu Evróputitlinum.Langbestu skemmtun!…
Innkast vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn. Valsmenn sýndu vígtennurnar eftir hlé, Víkingar með öruggan sigur gegn bikarþunnum Vestramönnum, Óskar Hrafn hatar stundum fótbolta, Árni Snær bjargaði Stjörnunni, gæðalaust í Krikanum, KA á skriði en Fram heldur áfram að færast nær vandræðum.…
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Haraldur Örn Haraldsson.
Tottenham lögðu Man City á Etihad sannfærandi. Arsenal löbbuðu yfir Leeds á heimavelli. Brentford sigraði Aston Villa 1-0. Everton með glæstan heimasigur í fyrsta leiknum á nýja stórglæsilega Hill Dickenson stadium. Chelsea kjöldrógu West Ham 1-5 á Ólympíu leikvanginum í London. Man Utd náðu í sterkt stig gegn Fulham í London. Hjálmar Örn skemmtikraftur og Spursari var gestur þáttarins og við fórum yfir umferðina.…
Það var stórkostlegur leikur í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar Newcastle og Liverpool áttust við. Þessi leikur kórónaði skemmtilega aðra umferð deildarinnar þar sem Tottenham lagði Manchester City, Arsenal sýndi flotta takta, Manchester United fór í sama gamla farið og Graham Potter virtist sigraður. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur Harðarson ræddu um umferðina að þessu sinni og tóku helstu sögulínur fyrir.…
Vogarnir komnir á toppinn, alltaf sama sagan með Augnablik og Árborg, ÍH í brunarústum og Úlfarnir með magnað Remontada. - 2-5.deild - Úrslit fyrri umferða - Spurningar frá fans - Tippleikur næstu umferða
Vestri er bikarmeistari 2025! Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er í styttra lagi þennan laugardaginn en sigur Vestra á Val fær þó gott pláss. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum. - Bikarúrslitaleikurinn - Evrópuleikur Breiðabliks - Komandi leikir í Bestu deildinni og Lengjudeildinni - Og aðeins um enska boltann…
Velkommen til Player FM!
Player FM is scanning the web for high-quality podcasts for you to enjoy right now. It's the best podcast app and works on Android, iPhone, and the web. Signup to sync subscriptions across devices.
Slut dig til verdens bedste podcast-app for at styre dine yndlings shows online og afspille dem offline på vores Android og iOS apps. Det er gratis og nemt!